|
|
30.10.2007 21:39:06 / lilja
Heil og sæl kæru bekkjarsystkyn. Við Sara og Áslaug erum að plana það að hittast næsta laugardag á Hressó, og fá okkur að borða saman, spjalla og svo kannski smá djamm. Við vorum að hugsa um að hittast klukkan 8, en þess má geta að það er 20% afsláttur á Hressó fyrir þá sem eru með stúdentakort, og alveg ágætis matur. Vonandi komast sem flestir, en það væri gott ef þið létuð mig vita (í síma 861-4890) fyrir fimmtudaginn hvort þið ætlið að borða, svo ég geti láti vita á Hressó hvað við verðum mörg. Hlakka til að sjá ykkur! Kveðja, Lilja Rut.
»
13.01.2006 18:26:28 / alda
Hvernig lýst ykkur á að mæta í partý til mín næsta laugardag?
Ég á heima í Holtsgötu 14 og við erum um 10 mín niður í bæ.
Vandamálið er samt að það er mjög lítið um bílastæði þannig að það
er um að gera að reyna að sameina í bíla. Íbúðin er ekki stór
en þröngt mega sáttir sitja og allir 4. uarar eru velkomnir til mín
svona upp úr tíu og munið að koma með ykkur einhverja gleðidrykki 
sjáumst hress og vonandi sem flest
»
11.01.2006 00:03:28 / bjoddn
...VITLAUST á þessari síðu eins og
venjulega
En loksins er eitthvað að fara að gerast
í málum bekkjarins, þ.e.a.s. eitthvað annað en einræðurnar hennar
Ragnheiðar hérna á síðunni... ég mæli með að hún fái titlinn
4.u-ari ársins 2005. En nóg um það.
Næsta laugardag, þ.e.a.s. þann 15. janúar
næstkomandi ætlum við í 4.u sem erum búsett á stór-rigningarsvæðinu
að hittast, sennilega á einhverju kaffihúsi niðri í bæ. Við erum
ekki alveg búin að ákveða hvar því að við erum ennþá að gæla við þá
hugmynd að einhver skjóti húsaskjóli yfir okkur svo að við þurfum
ekki að vera með leiðindi á öldurhúsum bæjarins og vera
sjálfum okkur og fjölskyldum til skammar eins og venjulega þegar
við komum saman
En að öllu bulli slepptu að þá væri
frábært ef eitthvert ykkar gæti fórnað íbúðinni sinni fyrir gott
málefni næsta laugardag, við erum flest vel upp alin þannig að
auðvitað munum við hjálpa til við að laga til og svona. Allavega ef
þið getið þetta þá megið þið kommenta hérna að neðan, eða hafa
samband við mig(6624724) eða Áslaugu(ekki
glóru).
Svo væri náttúrulega snilld að fá að sjá
eitthvað af amlóðunum sem ennþá búa á Akureyri eða eru í útlöndum
eða eitthvað svoleiðis... sögur segja m.a. að lítill
dýraunnandi frá danmörku ætli kannski að heiðra okkur með nærveru
sinni, kemur í ljós!
En ég ætla að hætta þessu rugli áður en
ég verð sjálfum mér til skammar og verð læstur inná klósetti á
laugardaginn heyrumst og verið þið duglega að
kommenta!
»
01.01.2006 14:36:56 / ragga
Gleðilegt nýtt ár öll sömul!!!
Megi það færa ykkur allt það sem þið stefnið að og óskið 
Kær kveðja, Ragnheiður Diljá 
»
14.06.2005 21:28:58 / lilja
Jæja, þá er partýið klárt
Við getum hittst heima hjá Iðunni á fimmtudaginn klukkan 16.30. Hún
býr á Hamarsstíg 18 (á horni Hamarsstígs og Ásvegar) þannig að við
erum í góðu göngufæri við Höllina og getum rölt þangað upp úr sex.
Svo geta þeir komið með drykki sem vilja, og allir koma með góða
skapið 
Endilega látið þetta berast til sem flestra.
Hlakka til að sjá ykkur, kveðja Lilja Rut
»
12.06.2005 22:27:04 / bjoddn
Það eina sem þið virðist geta er að spurja
hvort einhver ætli ekki að fara að skipuleggja eitthvað
sniðugt hniðugt fyrir 16. júní en enginn gerir neitt, nema
Ragnheiður
Ég veit það allavega að ef ég kæmist þá væri ég
löngu farinn að athuga hvort einhver væri einn heima á akureyri eða
hvort það væri hægt að fá bústað einhversstaðar í nágrenninu þar
sem mætti hella alls konar viðbjóði yfir allt og
alla  
En ég kemst því miður ekki og verð því að láta
þetta í hendurnar á ykkur hinum... en farið þið nú
allavega að gera eitthvað í alvöru, druslurnar
ykkar!!!
Engar harðar tilfinningar
Bjössi.......
»
12.06.2005 00:26:09 / alda
Bréf til afmælisárganga
frá 25 ára stúdentum
Kæri jubilant
Þessa dagana er undirbúningur í fullum gangi vegna MA hátíðarinnar
í Höllinni á Akureyri þann 16. júní.
Þátttaka er mjög góð og hafa tengiliðir staðið sig afar vel í að
miðla upplýsingum um fjölda þátttakenda frá hverjum árgangi.
Með þessu bréfi viljum við hvetja alla, sem ætla að mæta, að nýta
sér þann möguleika að kaupa miða á hátíðina í forsölu og greiða
fyrir fram í heimabanka. Fyrirframgreiðsla getur einnig farið
fram hjá gjaldkera í banka. Ef greitt er í banka þarf að
tryggja að gjaldkerinn skrái inn skýringu á greiðslu og sendi
tölvupóst, samanber upplýsingar sem tilgreindar eru hér að
neðan. Þeir sem ætla að greiða með þessum hætti þurfa að gera það
fyrir 11. júní. Einnig er bent á að prenta út kvittun og hafa til
taks þegar miðar verða sóttir.
Þetta er gert til að flýta fyrir og auðvelda framkvæmd við
miðasölu. Fyrir fram greiddir miðar verða svo afhentir í
miðasölunni í Höllinni 15. og 16. júní. Miðasalan er opin 15. júní
frá kl. 14:00 til 18:00 og 16. júní frá kl. 13:00.
Upplýsingar vegna fyrirframgreiðslu:
Kennitala: 5803051210 -
MA stúdentar 1980
Reiknisnúmer: 0323-26-011980
Upphæð: kr. 6.300 fyrir hvern
miða. 1 árs stúdentar greiða kr. 4.000
Skýring greiðslu: Nafn jubilants og
útskriftarár
Tilkynning með
tölvupósti á netfang: gudridur@lysing.is
Eins og áður hefur komið fram hefst hátíðin með fordrykk í anddyri
Íþróttahallarinnar um kl. 18:00. Nánari upplýsingar um hátíðina og
dagskrána má nálgast á vefsíðu okkar, http://staff.klasi.is/hp/
(sjá Hátíð 16. júní).
Fyrir hönd 25 ára MA-stúdenta 2005
Kær kveðja,
Hrefna Sigríður Bjartmarsdóttir - 659-2876, netfang
sigga@likan.com
Páll Freysteinsson - 820-3019, netfang pall@hugur.is
»
25.05.2005 10:06:18 / alda
jæja þið losnið ekki svo glatt við mig en ég er bara að láta ykkur
vita að þið getið skoðað matseðilinn fyrir 16. á þessari slóð
http://staff.klasi.is/hp/menu/menu.htm  En fólk, svo verðum við að
fara að skipuleggja fyrirpartí, ég veit allavega að sumir bekkir
eru þegar búnir að ákveða hvar þeir ætla að halda partí  Við
megum allavega ekki standa uppi 16. og hafa ekkert að gera fyrir
kvöldið. Þá er það bara spurningin, hverjir eru í aðstöðu til að
halda partí
»
16.05.2005 18:56:48 / alda
Ásgeir er tengiliður eins árs stúdenta og hann fékk bréf frá
undirbúningsnefndinni um atriði sem þurfa að vera á hreinu og ég
ætla bara að copy-paste það hér fyrir ykkur.
Undirbúningsnefnd 25 ára stúdenta vill með þessu bréfi minna á
MA
hátíðina í Íþróttahöllinni á Akureyri þann 16. júní næstkomandi.
Til
afmælisárganga teljast þeir sem eiga eins, fimm, tíu, fimmtán,
tuttugu, tuttugu og fimm, þrjátíu, fjörutíu, fimmtíu, sextíu og
sjötíu
ára stúdentsafmæli.
Hátíðin mun hefjast með fordrykk í anddyri Íþróttahallarinnar um
kl
18:00 og síðan verður þríréttað glæsilegt borðhald. Á dagskrá
verður
söngur, skemmtiatriði og að venju munu eins árs stúdentar fá gólfið
um
miðnætti til að kasta hvítu kollunum. Dansað verður til um kl.
03:00
við undirleik hljómsveitarinnar Í svörtum fötum og sér
Hljómsveit
Rafns Sveinssonar um gömlu dansana á efri hæðinni. Verðið er kr.
6.200
(nema fyrir 1. árs nema kr. 4.000) og kr. 2.000 ef komið er
eftir
matinn. Nánari upplýsingar um hátíðina og dagskrána má
nálgast þegar
nær líður á vefsíðu okkar, http://staff.klasi.is/hp/ (sjá Hátíð 16.
júní). Aðgöngumiðar verða seldir í höllinni 15. júní kl. 14-18 og
16.
júní frá kl. 13.
Jafnframt er erindið að bjóða ykkur að undirbúa skemmtiatriði í 5 –
7
mínútur. Ekki er beðið um hátíðarræðu þetta kvöld því 25
ára
stúdentar halda ræðu kvöldsins skv. venju. Við stingum upp á að
atriðin á hátíðinni tengist tíðaranda eða tísku ykkar tíma í
menntaskólanum s.s. með tónlist, gamanmálum eða leiknu atriði.
Jafntframt er bent á að hægt er að nýta tæknina s.s. undirspil
af
geisladiskum eða skjávarpa til myndsýninga og yrðum við ykkur
að
sjálfsögðu innanhandar í því.
Síðan fékk ég þetta um daginn:
Við þurfum að fá fréttir af skemmtiatriðum, þ.e. hvort fólk ætlar
að
taka þátt í þeim og þá hvað er í bígerð hjá ykkur með það. Þær
upplýsingar viljum við gjarnan fá helst ekki síðar en þriðjudaginn
17.
maí. Við ætlum síðan að boða ykkur til fundar við okkur í
skemmtinefnd
mánudaginn 23 maí kl. 20 á Sólon við Bankastræti. Nú eru einhver
ykkar
sem búið ekki hér á höfuðborgarsvæðinu og eiga því kannski bágt með
að
komast. Þið getið þá væntanlega fengið staðgengil fyrir ykkur.
Við
viljum líka benda ykkur á að ef þið viljið koma á framfæri
ljósmyndum
í myndasýningu sem við ætlum að vera með, hafið þá samband við
Guðna
R. Björnsson (gudni@forvarnir.is) með
það, helst ekki síðar en
föstudag 20 maí.
Við þurfum ekkert að hafa of miklar áhyggjur af því að skila
inn
upplýsingum um skemmtiatriðið fyrir 17. en gott væri að fá upp
hverjir
eru líklegir til þess að taka þátt í atriðinu sem fyrst.
Vonandi mun fólk sem hefur áhuga á þessu láta okkur vita ef við
setjum
þetta inn á bekkjarsíðurnar. Sömuleiðis mun vonandi fólk sem
hefur
áhuga á að koma ljósmyndum á framfæri einnig sjá þessar upplýsingar
á
bekkjarsíðunum.
Jói, spurning hvort að þú gætir farið á Sólon þetta umrædda kvöld,
eða
verður þú farinn heim? Eða væri gott að biðja Ævar um að fara,
fyrst
hann er fyrir sunnan og er líklegur til þess að taka þátt í
skemmtiatriðinu. Kristjana, þú talar kannski við hann?
Ég fékk þetta einnig um daginn:
Við erum að setja saman söngskrá núna og datt mér í hug að
athuga
hvort þið væruð með einhverjar óskir um söngva svona fyrir utan
hina
hefðbundnu söngva eins og t.d. Skólasöng MA og Gaudeamus
Ég benti á Rangur maður en kannski koma fleiri tillögur ef við
biðjum
um þær á bekkjarsíðunum.
Best væri sem sagt að setja inn upplýsingarnar á bekkjarsíðurnar og
út
frá því fá fram fólk í skemmtiatriði, óskarlög, fólk sem vill koma
á
framfæri ljósmyndum og ef til vill spurningar um e-ð sem er
óljóst
eða ábendingar.
Vonandi verða síðurnar sem virkastar (spurning hvernig þetta
verður
með G- bekkinn en Ragga þú veist svo sem hverjir eru líklegir í
þetta
allt saman) þannig að við þurfum að hringja sem minnst. Einnig vona
ég
að síðan sem undirbúningsnefndin setur upp verði mikið notuð.
Jæja, komið nóg í bili.
Bestu kveðjur,
Ásgeir
P.s. það þurfa allir að vera virkir að reyna að finna upp á
skemmtiatriðum því það er ekki á ábyrgð neins sérstaks í árgangnum
að sjá um þau og ef ykkur dettur eitthvað sérstakt í hug, skellið
því bara hér inn
Og svo þarf að minna alla á að finna sér gistingu í tíma.
kv. Alda Hrönn hvalur
»
03.05.2005 21:03:08 / alda
Ég hef verið ráðin í það að taka niður skráningar um hverjir
ætla að mæta á matinn og ballið kvöldið 16. júní. Að sjálfsögðu
ætla allir að mæta, er það ekki????  En það væri voða gott
ef þið skráðuð ykkur hér ,og einnig maka ef hann er með, eða
senduð mér bara sms fyrir 10.
maí og allir sem skoða bloggið látið þetta endilega berast
til allra í bekknum. Stuðkveðjur til allra
»
03.05.2005 11:52:03 / krissa
... ég er sko allavega farin að hlakka til að mæta á 16´danum!
það verður fjör að hitta ykkur kids again hehe
... en já hvað verður gert?
og hvernig skoða ég myndirnar?
kv. kidda
»
02.05.2005 15:02:53 / ragga
Hvernig er það nú með ykkur, eru ekki fleiri en ég byrjaðir í
prófum? Hvernig gengur enn sem komið er?
Ég bjóst nú eiginlega við að allt myndi fyllast af bloggfærslum
hjá okkur eins og vill nú gerast þegar maður á að vera upptekinn
við prófalestur! 
Gangi ykkur vel við prófalesturinn, munið að hreyfa ykkur og
borða reglulega!! Þið hin...endilega komið með e-r próftökutips
fyrir okkur eða bara segið okkur e-ð upplífgandi og skemmtilegt
;D
»
05.04.2005 20:49:26 / lilja
Hæ hæ öllsömul! Mér lýst vel á þetta nýja útlit, en við erum engan vegin búin að vera nógu dugleg hérna! Annars er ég nú alveg farin að hlakka til að koma norður á reunion. Hef ekki komið til Akureyrar frá því í lok ágúst, og er eiginlega komin með heimþrá Ætla samt kannski að kíkja norður núna um helgina og þá verður sko pottþétt farið í Brynju og kannski í sund (allavega ef veðrið verður gott). Hvað á annars að bralla í sumar? Ég er búin að fá vinnu á sjúkrahúsinu á Sauðárkrók, svo ætla ég að skella mér Kaupmannahafnar um verslunarmannahelgina á U2 tónleika, hlakka geðveikt til. En hvað 16. júní varðar, þá var einhver búin að hræða okkur sem voru í burtfararnefnd á því að við ættum að undirbúa eitthvað, en svo minnir mig að Alma hafi tekið það aftur. Mér skilst að 20 ára stúdentar sjái alveg um skipulagningu veislunnar. Hinsvegar væri nú alveg sniðugt að við myndum skipuleggja eitthvað fyrir bekkinn, kannski partý fyrir veisluna eða eitthvað svoleiðis. Endilega komið með hugmyndir. Kveðja Lilja Rut. ps. afsakið stafsetningarvillurnar sem gætu leynst þarna!!
»
02.04.2005 18:32:14 / ragga
Það liggur barasta við að maður geti farið að hlakka til
reunionsins, 2 1/2 mánuður þangað til...nei, kannski maður bíði
aðeins.
Ég er alla vega farin að hlakka til að byrja i verknámi á
mánudaginn...það er nú pínu kvíði farinn að gera vart við sig
líka! En það er bara nauðsynlegt svona með. Ég fer á Sel í 2 vikur
og ætla að hugsa afskaplega vel um gamla fólkið sem dvelur þar.
Hvernig er það annars með sextándann, þurfum við að skipuleggja
eitthvað eða er einhver nefnd sem gerir það?
Hafið það gott og endilega reynum aðeins að halda smá lífi í
þessari síðu okkar 
»
11.03.2005 16:21:47 / sandra
hallo allir...eru allir haettir ad blogga her? Eg er enn a
Spani...verd til 30 april Her er mjog gott ad vera og eg er ad
skemmta mer gridarlega vel! 
Vona ad ollum lidi vel....er farin ad hlakka rosalega til ad sja
ykkur OLL 16. juni! 
»
Síður: 1 2 3 ... 6
|
|